04.11.2006 17:20:19 / einarka

Myndir


Myndir af deginum eru fyrir neðan undir MYNDIR, Stóri Dagurinn. Afsaka stutta færslu en er í vinnunni og er búinn að lofa þessu fyrir löngu síðan. Þetta er bara smá preview.

Einar



» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 19:12:33 / einarka

Engar Ahyggjur

Bara ad lata alla vita ad eg fer ad setja inn myndir af stora deginum her fljotlega.  Tha getid thid sed hversu myndarlegur Yours Truly var!  8)

Update sidar

Einar


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 18:00:58 / einarka

La la la la .....

Bara ad lata vita af thvi ad eg er ekki daudur enn.

Solin skin og veitir okkur sinn normal 30 stiga hita tho ad thad se adeins farid ad kolna.

Eg sit i vinnunni og a ad vera ad gera eitthvad en er sma latur.

Segi ykkur meira seinna.

Einar


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 21:22:50 / einarka

Pétur, baunir......

Jæja, sæl og blessuð krakkar mínir.

Langt síðan að ég hef heyrt í ykkur.  Vona að allt gangi vel hjá öllum og allir séu ánægðir.
Hjá mér gengur bara ágætlega.  Er búinn að vera á fullu í vinnunni og svo er ég líka að vinna annarstaðar fyrir utan að ég þjálfa 2 í viku.  Bara gaman að því.

Veðrið er búið að vera svona líka leikandi gott fyrir utan þrumuveðrið hér um daginn, og er nánast 30 stiga hiti núna á hverjum degi.  Ekki gaman að vera að keyra um allan daginn í svoleiðis veðri.  Kannski maður ætti að fara að nýta sundlaugina fyrir utan hjá sér um helgar og reyna að ná sér í smá brúnku.
Annars er nú bara allt gott að frétta fyrir utan það.  Ætla kannski að kíkja á James Blunt tónleika í næstu viku og svo á bílasýningu á morgun.

En ég ætla að fara að reyna finna pakkann sem að ég sendi múttu með UPS fyrir rúmlega mánuði síðan. Hann er ekki kominn enn og þeir eru með stæla. 

Heyri í ykkur seinna.

Bæjó


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 16:02:55 / einarka

SSDD

Jæja, þá er enn önnur vikan liðin.  Vinnan gengur bara þrusuvel þannig að ég get ekki kvartað á því sviði.  Æfingar gengur ekki mjög vel, (mest af því að ég komst ekki mikið á æfingu) og því finnst mér líkaminn á mér vera eins og tuðra.  Ótrulegt hvernig þetta er þegar að maður er vanur að æfa en kemst svo ekki í smá tíma, maður verður alveg ónýtur.
Svo verður bara slappað af restina af helginni, kannski bara skroppið í bíó og þvíumlíkt.  Fór á V For Vendetta um daginn og það var ágætis mynd.  Öðruvísi framtíðarmynd en ég bjóst við þannig að ég skemmti mér ágætlega.

En ég þarf að fara að þjálfa núna þannig að ég er Over and Out!

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 20:25:22 / einarka

Fyrsta vinnuvikan...

eða skulum segja, fyrsta ALVÖRU vinnuvikan búinn, og gekk mér svona þrusuvel.  Bossinn bara hæstánægður með mig og þetta lítur bara vel út.  Við skulum bara sjá hvað gerist í þessarri viku, væri frábært að geta haldið þessu svona áfram.
Er í vinnunni á hverjum degi til 6 á kvölding þannig að ég er kominn heim um svona hálfsjö, sjö, þannig að það er ekki mikið gert á kvöldin annað en að éta og sofa.  Morgnarnir verða teknir með trukki héðan í frá og verður farið í ræktina klukkan 6.  Gaman eða hitt þó.  Bara kominn tími til að gera eitthvað.
En ég ætla núna að sitja og hlusta á storminn úti þar sem að sjónvarpið er dottið út og kannski þrífa bara smá.

Heyri í ykkur seinna!




» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 21:45:57 / einarka

Kominn tími til....

Jæja, þá er maður loksins kominn í vinnu. Ég er orðinn Account Executive hjá Heartland lenders. Hljómar mikilvægt, auðvitað. Það verður allaveganna fróðlegt að sjá hvernig fyrstu vikurnar verða þannig að núna leggur maður bara hart að sér og sparkar í rassa (kicks some ass).

En heyri alla vega í ykkur seinna.

Einar

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 04:07:16 / einarka

Önnur færsla, sami dagur. Hvað er að gerast?

Hann Óli félagi minn kom hingað til mín í afslöppun í byrjun þessa mánaðar.  Við gerðum hitt og þetta skemmtilegt eins og að fara á Mavericks vs. Lakers þar sem að Mavericks tóku Lakers svo gjörsamlega í nefið.  Svo verslaði hann Óli eins og vitleysingur og svo auðvitað supum við öl og fórum aðeins út að borða.  Hann Óli kom líka með íslenskt nammi handa mér og 2 kippur af íslenskum bjór ásamt Vodkaskot TÓPAS og ÓPAL (nammi namm).:P

En síðan að hann fór er ég búinn að vera að bíða eftir að heyra frá einum atvinnuveitanda og átti reyndar að hitta hann í þessarri viku til að fara yfir hlutina en það hefur reynst erfitt að finna tíma til að hittast.  Vona að það fari að gerast núna fljótlega því að mig er farið að dauðlanga til að byrja að vinna við þetta helvíti (og þá meina ég fasteignirnar).:S

En ég læt ykkur vita hvernig fer núna í vikunni og ef að eitthvað fer í gang.

Chao

Einar


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 22:06:25 / einarka

Blogg vegna kvarts, nei ég meina ég vil blogga

Já, ég er ekki búinn að blogga svolítið lengi en ákvað að drífa í því núna úr því að ég fann svona bráðamynda slóð fyrir myndirnar mínar og svo var líka komið kvart á síðuna um að ég ætti að fara að drífa mig í því. :)

Nú, cruisið var afskaplega notalegt með múttu, kallinum hennar og Antoni bróður. Við sigldum frá Galveston og var skipið sem að við vorum á alveg frábært, með spílavíti, klúbbum, börum, sundlaugum og hele klabbinu bara.
Við byrjuðum á því að sigla til Jamaica þar sem að við Anton ákvaðum að fara í smá Tarzan leik í frumskóginum á meðan að gamla settið gerði sína hluti. Eins og sést var alveg ævintýralegt að sveifla sér svona hátt yfir jörðinni öskrandi eins og algjör villimaður. :klikk:



Eftir að hafa sveiflað sér í trjánum ákváðum við að að njóta sólarinnar og ákvaðum að fara á Margaritaville hans Jimmy Buffets. Þar syntum við Anton aðeins í sjónum og létum eins og litlir krakkar á trampólíninu þar. Þetta var alveg frábært.



En eftir ágætis dag þá var komið að því að sigla á næsta stað og sá var nú ekki af verri endanum. CAYMAN ISLANDS
Maður ætti nú kanski að stoppa aðeins fyrst og segja ykkur frá matnum um borð. Hann var alveg æðislegur, svo góður að það var fyndið að sjá múttu og kallinn hennar sem eru bæði kokkar slefandi og stynjandi hvert einasta kvöld. Það var alltaf 3 rétta máltíð og maður fékk alltaf matseðil til velja hvað maður vildi. Besti veitingastaður sem að ég hef farið á gerir ekki mikið betri mat en við fengum þarna. Og alltaf okkar eigin þjónar.

En eftir 2 daga siglingu þa komum við að lokum til Cayman sem að var hápúnktur ferðarinnar. Þegar að við komum þangað drifum við okkur til að synda með skötunum og það var SVO gaman. Við fórum öll fjögur og vorum sammála að það var HÁpunkturinn. 8)



Svo eftir það fórum við að versla, en gull og gimsteinar eru ódýr á Cayman. Plús, svo sá ég svo flott hús þarna að ég er alltaf að skoða fasteignirnar þar núna. Langar í hús þar! (hér er slóð ef að einhver hefur áhuga að skoða hús þar Cayman húsleit )

Því næst sigldum við til Mexico, þar sem að við ætluðum að synda með höfrungum en þar sem að ég djammaði aðeins of mikið með crewinu kvöldið áður, þá náði ég ekki að komast í land sökum maga og höfuðverkjar. :^) En ég frétti að skötusundið hefði verið skemmtilegra þannig að það bætti upp fyrir mikið, þó að maður hefði nú frekar viljað synda með höfrungum heldur en að liggja uppá herbergi og sóað 10.000 kalli í ekki neitt. Kannski næst!

En eftir það var ferðinni haldið heim og lentum í smá ólgusjá á heimleið en það eyðilagði nú ekki mikið fyrir okkur þannig að ferðin heppnaðist vel í flesta staði.

Myndir frá krúsinu er hægt að skoða hér til hliðar!!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 06:14:57 / einarka

myndaves

Jæja krakkar mínir,
það er eitthvað vesen með myndir frá myndasíðunni minni.  Ætla að fixa þetta snöggvast og svo hendi ég inn öðru bloggi.

Einar


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 18:38:21 / einarka

Útskrift

Jæja, þá er kominn tími til að skrifa eitthvað skemmtilegt inná síðuna. En ég hef aftur á móti ákveðið að skrifa þetta í áföngum bara svo að ég sé ekki með 5 blaðsíðna Word ritgerð á blogginu fyrir einn dag, þannig að í dag fáið þið smá skrif og myndir frá útskriftinni minni.

Daginn eftir að prófin voru búinn, og ég alveg dauðuppgefinn sótti ég múttu, kallinn hennar og bróðir minn út á flugvöll, en þau ætluðu að vera kominn daginn áður en voru föst í snjóstormi í Boston og þar að auki voru bara á standby miðum þannig að það var ekki víst hvort að þau kæmust í útskriftina. En þau enduðu á því að komast degi seinna eða sama dag og útskriftin var. Þannig að að við drifum okkur heim af flugvellinum og klæddum okkur, og svo var bara drifið sig út í skóla.

Hann Oddur Sig félagi minn, sem að býr hér í Dallas, kom svo með okkur í útskriftina bara svona til stuðnings. Svo að sjálfsögðu skelltum við okkur á barinn á eftir og fengum okkur nokkra drykki áður en að við fórum heim. Næsta dag þurftum við að vakna snemma til að fara í krúsið og ég segi frá því á morgun.

En hér koma nokkrar myndir af útskriftinn, og svo ætla ég nú að setja upp myndasíðu þannig að allir geta skoðað allar þessar myndir og fleiri til.


Mæðginin


Stuðningsmenn


Bræðurnir

Og þar hafið þið það. Er að hlaða inn myndum inná myndasíðuna mína þannig að þið getið fljótlega skoðað þetta allt saman.

Heyrumst

Einar






» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 19:32:13 / einarka

Meiri loford

Eg veit ad eg aetladi ad vera longu buinn ad skrifa a siduna en eg verd bara ad vidurkenna ad eg er buinn ad vera alltof latur til thess.  Eg er med fullt af myndum til setja inn a siduna, fra jolafriinu, karabiska hafinu og svo bara random myndum en eg er bara thvi midur ekki heima fyrr en a laugardag.

Thannig ad, thid verdid bara a setja ykkur i stellingar fyrir skemmtilega innlogn a laugardag.  Fyrir marga myndi thad vera sunnudagur.

Heyrumst tha

Einsi


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 20:39:45 / einarka

Bara til ad utskyra.


Eg vildi bara taka thad fram ad eg er ekki haettur ad skrifa heldur er eg ad taka breik a thangad til ad profin eru buin. Eg hafdi varla tima til ad gera neitt um thanksgiving break thvi ad thad var allt a fullu.
Eg mun thvi koma aftur eftir ruma viku med einhverja ritgerd handa folkinu.

En her er sma grin fyrir tha sem ad fila Gretti



Heyrumst tha

Einar



» 44 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 21:17:01 / einarka

Mathakur

Svona er eg buinn ad vera undanfarna daga. Get ekki haett ad eta.  Og thad ekki mjog hollt.

Skil thetta ekki.


» 47 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3